29.04.1974
Sameinað þing: 79. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3962 í B-deild Alþingistíðinda. (3514)

121. mál, z í ritmáli

Ragnar Arnalds:

Herra forseti. Þar sem mér er kunnugt, að kennsla þessa ágæta bókstafs í skólum landsins kostar, að því er áætlað er, yfir 10 millj. kr. árlega, og þar sem þjóðin hefur margt annað gagnlegra við það fé að gera og þar sem ég tel auk þess fráleitt af Alþ. að fara að stjórna því, hvaða stafsetningarreglur eigi að gilda í landinu, þá segi ég nei.