07.05.1974
Neðri deild: 122. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 4258 í B-deild Alþingistíðinda. (3855)

291. mál, almannatryggingar

Ragnhildur Helgadóttir:

Herra forseti. Það mál, sem hér liggur fyrir til 1. umr., felur í sér ýmsar allflóknar breyt. á núgildandi l. um almannatryggingar, og þar sem ég á sæti í þeirri n., þar sem þetta mál mun væntanlega koma til athugunar, vil ég leyfa mér að óska þess, að hæstv. ráðh. fylgi því úr hlaði.