27.11.1973
Sameinað þing: 24. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 883 í B-deild Alþingistíðinda. (759)
Varamaður tekur þingsæti
Forseti (Eysteinn Jónsson):
Mér hefur borist svo hljóðandi bréf:
„Reykjavík, 27. nóv. 1973.
Þorvaldur Garðar Kristjánsson, ritari þingflokks sjálfstæðismanna, 5. þm. Vestf., hefur í dag ritað mér á þessa leið:
„Samkv. beiðni Jóhanns Hafsteins, 1. þm. Reykv., sem þarf að fara til útlanda í erindagerðum, leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. 1. um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður hans, Birgir Kjaran, taki á meðan sæti hans á Alþ.“
Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.
Gils Guðmundsson,
forseti Nd.“
Birgir Kjaran hefur áður setið þing á þessu kjörtímabili og kjörbréf hans verið samþ., og býð ég hann velkominn til starfa.