04.09.1974
Neðri deild: 14. fundur, 95. löggjafarþing.
Sjá dálk 209 í B-deild Alþingistíðinda. (207)

6. mál, fjáröflun til vegagerðar

Ólafur G. Einarsson:

Herra forseti. Þar sem með frv. því, sem hér er til umr., er verið að leysa brýnustu fjárþarfir Vegasjóðs og sýnt hefur verið fram á, að þrátt fyrir ráðgerða hækkun á tekjum hans verður um verulegan niðurskurð framkvæmda að ræða, tel ég ekki fært að binda hluta af tekjum Vegasjóðs við sérstakar nýjar framkvæmdir í þéttbýli, þótt nauðsynlegar séu. Ég segi því nei.