21.12.1974
Sameinað þing: 30. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1359 í B-deild Alþingistíðinda. (1169)

1. mál, fjárlög 1975

Ingvar Gíslason:

Hafnarbætur á Húsavík eru að vísu ákaflega mikilvægar, og er nú unnið að þeim allvel og hefur verið gert að undanförnu Ráðgert er að ljúka mikilvægum áfanga nú í sumar. Ég hygg að það sé nokkuð víst, að það verði hafist handa á árinu 1976 við mikilvægan áfanga einnig. Með tilliti til þeirrar vissu minnar, vil ég segja, þá segi ég nei.