12.02.1975
Efri deild: 42. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1677 í B-deild Alþingistíðinda. (1384)

124. mál, alþjóðareglur til að koma í veg fyrir árekstra á sjó

Frsm. (Ingi Tryggvason):

Herra forseti. Ed. hefur verið sent að nýju frv. til l. um heimild fyrir ríkisstj. til þess að staðfesta fyrir Íslands hönd samþykkt um alþjóðareglur til að koma í veg fyrir árekstra á sjó. Breyting sú, sem Nd. gerir á þessu, er einungis á þá leið, að bætt verði einni gr. við frv., sem hljóðar þannig: „Lög þessi öðlast þegar gildi.“

Ég sé ekki ástæðu til þess að orðlengja neitt um þetta og sé ekki heldur ástæðu til þess að gera till. um að málinu verði vísað til n.