19.11.1974
Sameinað þing: 10. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 229 í B-deild Alþingistíðinda. (146)

Rannsókn kjörbréfs

Frsm. (Eyjólfur K. Jónsson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur haft til athugunar kjörbréf Kjartans Ólafssonar ritstjóra, 1. landsk. varaþm. Alþb. N. hefur ekki séð neitt athugavert við kjörbréfið og mælir með að það verði samþ. og kjörið tekið gilt.