29.04.1975
Sameinað þing: 70. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3415 í B-deild Alþingistíðinda. (2510)

214. mál, innheimta afnotagjalda sjónvarps og hljóðvarps

Fyrirspyrjandi (Helgt F. Seljan) :

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðh. skýr og greinargóð svör varðandi þessa fsp. Hvað það snertir að hann hafi leitað um þetta formlegrar umsagnar lögfræðinga skil ég mætavel að það þvælist fyrir þeim góðu mönnum, sem oft eru nú annars ekki í vandræðum með ýmsar skýringar og túlkanir, að útskýra þessa sérstæðu innheimtuaðferð. Ég verð aðeins að treysta því að þegar þetta álit liggur fyrir, sem ég hygg að muni verða heldur neikvætt fyrir þessa annars ágætu stofnun, þá muni hæstv. ráðh. sjá svo til að ekkert ranglæti verði í því máli framið.