16.05.1975
Sameinað þing: 81. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4381 í B-deild Alþingistíðinda. (3683)
144. mál, lækkun á byggingarkostnaði
Frsm. (Lárus Jónsson) :
Herra forseti. Allshn. hefur haft þessa till. til athugunar og gefið út svofellt nál.:
„Allshn. hefur haft til athugunar till. til þál. um lækkun á byggingarkostnaði. N. leggur til, að till. verði samþ. með þessari breytingu:
Tillgr. orðist svo:
Í þeim tilgangi að draga úr húsnæðiskostnaði ályktar Alþ. að fela ríkisstj. að láta gera nákvæma skýrslu um þann hluta byggingarkostnaðar sem fólginn er í ýmiss konar gjöldum til ríkisins. Höfð skal hliðsjón af þessari skýrslu við þá endurskoðun aðflutningsgjalda og söluskatts sem nú fer fram.“