17.12.1974
Efri deild: 25. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 978 í B-deild Alþingistíðinda. (823)
111. mál, Hitaveita Suðurnesja
Axel Jónsson:
Herra forseti. Ég vil eins og síðasti ræðumaður láta í ljós ánægju yfir því að þetta frv. er komið fram, þakka hæstv. iðnrh. fyrir að málið skuli vera komið á þetta stig. Hér er um að ræða tvímælalaust eitt mesta hagsmunamál byggðanna á Suðurnesjum, og ég vænti að hv. þdm. geri sitt til þess að málið megi fá sem skjótastan framgang.