23.03.1976
Sameinað þing: 68. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2696 í B-deild Alþingistíðinda. (2226)

Rannsókn kjörbréfs

Forseti (Ásgeir Bjarnason):

Í gær las ég bréf frá Lárusi Jónssyni alþm. þar sem hann óskar eftir að fram fari rannsókn á kjörbréfi 2. varamanns í Norðurlandskjördæmi eystra, Vigfúsar Jónssonar bónda á Laxamýri, og vísa ég kjörbréfi hans til kjörbréfanefndar. Verður fundi frestað í 5 mínútur á meðan kjörbréfanefnd rannsakar kjörbréfið. — [Fundarhlé.]