29.03.1976
Efri deild: 82. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2793 í B-deild Alþingistíðinda. (2322)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Mér hefur borist svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 24. mars 1976.

Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 1. varamaður landsk. þm. Alþfl., Bragi í Sigurjónsson bankaútibússtjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Jón Árm. Héðinsson,

1. landsk. þm.

Bragi Sigurjónsson hefur setið áður á Alþingi og þarf því engar sérstakar ráðstafanir að gera í sambandi við komu hans, og býð ég hann velkominn til starfa.