13.05.1976
Neðri deild: 108. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4172 í B-deild Alþingistíðinda. (3555)

274. mál, Framkvæmdastofnun ríkisins

Gunnlaugur Finnsson:

Hæstv. forseti. Enda þótt ég sé efnislega samþykkur síðari hluta till. um að það sé eðlilegt að stefna að því að forstjórar hafi ekki öðrum störfum að gegna þá tel ég eigi að síður ekki fært á þessu stigi málsins að ákveða það að forstjóri skuli aðeins vera einn, og þar af leiðandi segi ég nei.