18.05.1976
Sameinað þing: 92. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4521 í B-deild Alþingistíðinda. (4088)

84. mál, jarðhitaleit á Snæfellsnesi

Frsm. (Jón G. Sólnes):

Herra forseti. Þáltill. sú, sem hér er til umr., hefur verið tekin til meðferðar hjá atvmn. og varð n. sammála um svofellt nál.:

„Þar sem jarðhitaleit er nú skipulögð um land allt af Orkustofnun og eins fyrir landssvæði það, sem till. fjallar um, leggur n. til að máli þessu verði vísað til ríkisstj.

Fjarstaddir afgreiðslu málsins voru Gils Guðmundsson, Guðmundur H. Garðarsson og Karvel Pálmason.