18.05.1976
Neðri deild: 119. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4574 í B-deild Alþingistíðinda. (4172)

Starfslok neðri deildar

Forseti (Ragnhildar Helgadóttir):

Ég þakka hv. 5. þm. Vestf. fyrir árnaðaróskir hans í minn garð og hv. þdm. undirtektir þeirra og ítreka óskir mínar um að við megum öll hittast hér heil á ný á næsta þingi og megum öll njóta góðs sumars til þess að við getum eflst til starfa á næsta þingi til blessunar okkar landi. — Þessum fundi er slitið.