20.12.1976
Efri deild: 33. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1463 í B-deild Alþingistíðinda. (1128)

99. mál, tímabundið vörugjald

Frsm, meiri hl. (Halldór Ásgrímsson) :

Herra forseti. Fjh.- og viðskn. hefur fjallað um frv. til l. um breyt. á l. um sérstakt tímabundið vörugjald, en n. var ekki sammála um afgreiðslu þess. Minni hl. skilar séráliti, en meiri hl. leggur til að frv. verði samþ. með þeirri breyt. sem fram kemur á sérstöku þskj.

brtt., sem meiri hl. n. leggur hér fram, er aðeins þess efnis að hér er um að ræða númer í hinni nýju tollskrá sem höfða til þeirra vöruflokka sem áður voru í lögum. Með því að ný númer hafa verið tekin upp í tollskrá er nauðsynlegt að breyta einnig vörunúmerum í lögum um sérstakt tímabundið vörugjald.