27.04.1977
Efri deild: 65. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3783 í B-deild Alþingistíðinda. (2705)

172. mál, umferðarlög

Albert Guðmundsson:

Herra forseti. Ég vil þakka hv. allshn. fyrir góðar undirtektir við þetta frv. mitt á þskj. 335. Ég get vel fellt mig við þær breytingar sem n. leggur til og birtar eru á þskj. 536. En þar sem áríðandi er að frv. þetta nái gildistöku sem fyrst, eftir því sem mér hefur verið tjáð, leyfi ég mér að vona að það nái samþykki beggja d. áður en yfirstand­andi þingi lýkur.