18.10.1976
Sameinað þing: 4. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 41 í B-deild Alþingistíðinda. (32)

Rannsókn kjörbréfs - varamenn taka þingsæti

Forseti (Ásgeir Bjarnason):

Mér hefur borist eftirfarandi bréf:

„Reykjavík, 18. okt. 1976.

Páll Pétursson, 3. þm.. Norðurl, v., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég af persónulegum ástæðum get ekki sinnt þingstörfum á næstunni, leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Norðurl. v., Guðrún Benediktsdóttir, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt,

Ragnhildur Helgadóttir.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Guðrún Benediktsdóttir hefur áður setið á þingi á þessu kjörtímabili og því hefur farið fram rannsókn á hennar kjörbréfi og býð ég hana velkomna til starfa.

Mér hefur borist eftirfarandi bréf:

„Reykjavík, 16, okt. 1976.

Ritari þingflokks sjálfstæðismanna hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Samkvæmt beiðni Odds Ólafssonar, 2. þm. Reykn., sem nú er á förum til útlanda í opinberum erindum, leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður hans, Ingvar Jóhannsson framkvæmdastjóri, taki sæti hans á meðan á Alþingi.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um að þér látið fram fara í Sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Þorv. Garðar Kristjánsson.

Til forseta sameinaðs Alþingis“

Ingvar Jóhannsson hefur ekki setið á Alþ. á þessu kjörtímabili og ber því að rannsaka kjörbréf hans. Vil ég biðja kjörbréfanefnd að rannsaka kjörbréfið og gef henni 5 mín. til starfa. — [Fundarhlé.]