02.05.1977
Neðri deild: 86. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 4167 í B-deild Alþingistíðinda. (3226)

102. mál, tilkynningarskylda íslenskra skipa

Pétur Sigurðsson:

Virðulegi forseti. Ég er flm. að þessu frv. og það hafa verið gerðar nokkrar breytingar á því í Ed. Þær eru gerðar með mínu samþykki eða ég fellst á þær fullkomlega. Það hefur verið haft samráð við Slysavarnafélag Íslands um þær. Ég persónulega mæli með því að málið verði látið ganga áfram með áorðnum breytingum frá Ed.