16.11.1976
Sameinað þing: 19. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 634 í B-deild Alþingistíðinda. (408)

Rannsókn kjörbréfs - varamaður tekur þingsæti

Frsm. (Pálmi Jónsson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur fjallað um kjörbréf Péturs Péturssonar fyrrv. alþm., sem er 2. varamaður landsk. þm. Alþfl. og tekur sæti á Alþ. í fjarveru hv. 8. landsk., Sighvats Björgvinssonar. 1. varaþm. landsk. þm. Alþfl., Bragi Sigurjónsson, situr þegar á Alþ. N. er sammála um að mæla með samþykkt kjörbréfsins og að kosning varaþm. sé metin gild.