07.12.1976
Sameinað þing: 29. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 974 í B-deild Alþingistíðinda. (663)

248. mál, geðdeild Landsspítalans

Sjútvrh. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Ég vil aðeins endurtaka það sem ég sagði, að þó að landsfundur flokks míns hafi gert slíka samþykkt, þá hefur þingflokkur flokks míns gert þá samþykkt sem hann hefur gert með því að greiða atkv. með lögum um heilbrigðisþjónustu, þar sem tiltekin svæði og tilteknar framkvæmdir eiga að njóta forgangs. Ég hef ekki á móti því, síður en svo, að það verði veitt hærri upphæð til heilbrigðismála eða til uppbyggingar heilbrigðisstofnana, eins og ég hef lagt til. Hitt verður svo að ráðast, að hver málaflokkur fyrir sig verður að slá af í þeim efnum.