15.12.1976
Sameinað þing: 32. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1243 í B-deild Alþingistíðinda. (841)

1. mál, fjárlög 1977

Ingvar Gíslason:

Herra forseti. Ég er ekki við því búinn að greiða atkv. með þessari till., hef ekki áttað mig á hvort þessi tala er eðlileg. Hitt held ég, að sú tala, sem í frv. er, sé kannske líka nokkuð óviss og óljós og mætti vera hærri að mínum dómi. En með tilliti til þess að ég hef ekki enn þá gert hug minn upp um það, hvort eðlilegt sé að samþykkja svo háa tölu sem þarna er gert ráð fyrir, þá ætla ég að sitja hjá við þessa atkvgr.