20.12.1977
Sameinað þing: 34. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1595 í B-deild Alþingistíðinda. (1309)

123. mál, framkvæmdir og þjónusta í þágu bandaríska hersins á Íslandi

Magnús T. Ólafsson:

Herra forseti. Að mínum dómi fullnægja langflestir liðir þessarar fsp. ákvæðum þingskapa, en þó eru einstakir liðir, svo sem 9. og 12., sem ég tel ekki nógu skýrt afmarkaða. Því greiði ég ekki atkv.