21.12.1977
Efri deild: 52. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1698 í B-deild Alþingistíðinda. (1400)

Þingfrestun

Eggert G. Þorsteinsson:

Herra forseti. Ég vil fyrir hönd okkar þdm. færa hæstv, forseta þakkir fyrir árnaðaróskir í garð okkar dm. og fjölskyldna okkar og tek mér það leyfi að þakka honum fyrir góða og sanngjarna fundarstjórn það sem af er þessu þingi og óska honum og fjölskyldu hans gleðilegrar jólahátíðar og þess að við megum sjá hann heilan hér þegar þing hefur störf að nýju. Starfsliði Alþingis flyt ég sömu óskir. Ég vil biðja hv. þdm. að taka undir þessar óskir mínar með því að rísa úr sætum. — [Þdm. risu úr sætum.]