21.12.1977
Neðri deild: 46. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1699 í B-deild Alþingistíðinda. (1405)

Þingfrestun

Magnús T. Ólafsson:

Hæstv. forseti. Fyrir hönd okkar dm. leyfi ég mér að þakka hæstv. forseta góðar óskir og hlýleg orð í okkar garð. Sömuleiðis þakka ég forseta fundarstjórn og samstarf og tillit til okkar dm. Ég tek undir þakklæti forseta við starfslið þingsins fyrir aðstoð þess við okkur þdm. Ég vil óska hæstv. forseta og fjölskyldu hennar gleðilegra jóla. Ég bið hv. þdm. að taka undir óskir mínar með því að rísa úr sætum. — [Þdm. risu úr sætum.]