16.02.1978
Efri deild: 64. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 2500 í B-deild Alþingistíðinda. (1823)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson) :

Mér hefur borist svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 15. febr. 1978.

Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstunni, leyfi ég mér, með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Austurlandskjördæmi, Þorleifur Kjartan Kristmundsson sóknarprestur, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Halldór Ásgrímsson,

5. þm. Austurl.“

Séra Þorleifur hefur setið áður á Alþingi og býð ég hann velkominn til starfa.