26.04.1978
Neðri deild: 83. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 3977 í B-deild Alþingistíðinda. (3168)

225. mál, bókhald

Frsm. (Lárus Jónsson):

Virðulegi forseti. Fjh.- og viðskn. þessarar hv. d. hefur haft til athugunar frv. til l. um bókhald. Felur frv. í sér tvær meginbreytingar frá núgildandi bókhaldslögum. Það er í fyrsta lagi fallið frá skilyrði um innbundna eða löggilta efnahagsbók og í öðru lagi er opnuð heimild til þess að setja reglugerðarákvæði um geymslu bókhaldsgagna á filmu. N. mælir einróma með samþykkt frv.