02.05.1978
Sameinað þing: 73. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 4301 í B-deild Alþingistíðinda. (3536)

271. mál, flugöryggismál

Frsm. (Steinþór Gestsson):

Herra forseti. Fjvn. hefur haft til umfjöllunar till. til þál um markmið og leiðir í flugöryggismálum sem hæstv. samgrh. hefur lagt fram.

Þegar þáltill. var hér fyrst til umr. í Sþ. mælti hæstv. samgrh. fyrir henni og skýrði hana og sé ég ekki ástæðu til að endurtaka neitt af því sem hann sagði um efni hennar, en vil aðeins ítreka það, að fjvn. samþ. einróma að mæla með því, að þáltill. yrði samþ. óbreytt.