15.11.1977
Sameinað þing: 17. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 638 í B-deild Alþingistíðinda. (446)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Ásgeir Bjarnason):

Mér hefur borist eftirfarandi bréf:

„Reykjavík, 14. nóv. 1977. Gylfi Þ. Gíslason, 9. þm. Reykv., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstunni, leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Alþfl. í Reykjavík, Björn Jónsson, forseti Alþýðusambands Íslands, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.

Ragnhildur Helgadóttir,

forseti Nd.

Ég leyfi mér að bjóða Björn Jónsson velkominn til starfa á Alþingi.