15.11.1977
Sameinað þing: 17. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 648 í B-deild Alþingistíðinda. (459)

64. mál, þorskstofninn

Fyrirspyrjandi (Guðlaugur Gíslason):

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. sjútvrh, fyrir svör hans og þá skýrslu sem hann hér flutti. Ég tel mjög gagnlegt fyrir þingheim að fá að kynna sér hana nánar og væri vissulega ástæða til frekari umr. um þetta mál í heild. En í fyrirspurnatíma verður því að sjálfsögðu ekki við komið þar sem tími er þar mjög takmarkaður. Ég endurtek: ég þakka hæstv. ráðh. fyrir þá skýrslu sem hann flutti.