16.11.1977
Neðri deild: 15. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 715 í B-deild Alþingistíðinda. (497)

24. mál, eftirlaun aldraðra félaga í stéttarfélögum

Sjútvrh. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Þetta frv. er einnig til staðfestingar á brbl. sem gefin voru út 28. júní og voru sett í samræmi við ákvörðun ríkisstj. til þess að greiða fyrirsamkomulagi um lífeyrismál sem heildarlausn í þeim kjarasamningum sem undirritaðir voru 22. júní, þar sem aðilar vinnumarkaðarins gerðu með sér samkomulag um málefni lífeyrissjóða á samningssviði þeirra, þess efnis að lífeyrir lífeyrisþega, sem rétt eiga til slíks samkvæmt lögum nr. 63 frá 1971, verði á árunum 1977–1979 verðtryggður með greiðslu sérstakrar uppbótar á lífeyri og verði útgjöld vegna uppbótagreiðslna þessara borin af þeim lífeyrissjóðum sem í hlut eiga. Enn fremur skorti í lögin frá 1971, nr. 63, ákvæði er heimill greiðslu makalífeyris til fólks sem búið hefur saman ógilt svo árum skiptir og því talið brýnt að setja slíkt heimildarákvæði eins og gert var í brbl. og lagt er til að hér verði staðfest.

Ég legg til, herra forseti, að að lokinni þessari umr. verði þessu frv. vísað til hv. heilbr: og trn. og 2. umr.