22.2.2008

Vetrarfundur ÖSE-þingsins 22.-23. febrúar 2008

Vetrarfundur þings Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) fer fram dagana 22.-23. febrúar í Vínarborg í Austurríki.

Einar Már Sigurðarson, formaður Íslandsdeildar, Pétur H. Blöndal varaformaður og Valgerður Sverrisdóttir sækja fundinn fyrir hönd Íslandsdeildar ÖSE-þingsins.

Málefnanefndir þingsins koma saman á fundinum og þingmenn hitta m.a. fastafulltrúa og embættismenn á vegum ÖSE. Sérstök umræða verður um Kosovo auk fyrirhugaðs eldflaugavarnakerfis Bandaríkjanna og NATO í Póllandi og Tékklandi og stöðu sáttmálans um hefðbundinn herafla í Evrópu (CFE-samningurinn um takmörkun vígbúnaðar) sem rússnesk yfirvöld sögðu nýverið upp í andstöðu við fyrirhugað eldflaugavarnakerfi.

Pétur H. Blöndal hefur undanfarið verið fulltrúi ÖSE-þingsins í fjárreiðum ÖSE og mun hann leggja fram skýrslu um það starf.