Fundur þingmannanefndar um norðurskautsmál 5.-6. júní í Nuuk
Dagana 5.-6. júní verður haldinn fundur þingmannanefndar um norðurskautsmál í Nuuk. Á fundinum verður m.a. rætt um samstarf og stjórnskipulag á norðurslóðum, loftslagsbreytingar og heilsufar.
Auk þess verður rætt um skipulagningu næstu ráðstefnu nefndarinnar sem haldin verður á Akureyri 5.-7. september 2012.
Fyrir hönd Alþingis sækir fundinn formaður Íslandsdeildar, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir.