Starfið framundan
(1509135)
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
Nefndarfundir
Dagsetning | Fundur | Bókun |
---|---|---|
10.08.2016 | 55. fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar | Starfið framundan Formaður fór yfir starfið framundan og dagskrár næstu funda og nefndin fjallaði um málin. Formaður fór yfir mál sem varðar málefni skuldara og drög að bréfi til velferðarnefndar Alþingis og velferðarráðuneytis vegna málsins. Samþykkt að senda bréfið. |
19.01.2016 | 22. fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar | Starfið framundan Formaður fór yfir mál sem eru til umfjöllunar í nefndinni og nefndi sparisjóðaskýrsluna, frumvarp um til laga um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga, þingsálytkunartillögu um siðareglur fyrir alþingismenn og væntanlegt frumvarp til stjórnarskipunarlaga. Þá nefndi formaður þá ætlun nefnarinnar um að fjalla um eftirlit með lögreglu sbr. það sem kemur fram í áliti hennar um skýrslu umboðsmanns Alþingis fyrir árið 2014. Formaður nefndi einnig önnur erindi svo sem frá Svifflugfélagi Íslands, landeigendum Heiðarfjalls á Langanesi og ítrekað erindi frá Björgólfi Thor Björgólfssyni sem verður sent nefndinni. Formaður fór einnig yfir tilhögun næstu funda. |
15.09.2015 | 1. fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar | Starfið framundan Nefndin ræddi fyrirkomulag næstu funda og stöðu mála í nefndinni. Samþykkt að ítreka erindi formanns til fjármála- og efnahagsráðuneytis í tengslum við svokallað Víglundarmál, þ.e. stýrinefnd stjórnvalda um samninga við erlenda kröfuhafa bankanna árið 2009, vegna ábendingar um að í þau gögn/upplýsingar sem ráðuneytið hefur þegar sent nefndinni vanti tilteknar upplýsingar/gögn. |