Sala á landi ríkisins í Skerjafirði

(1608072)
Fjárlaganefnd

Nefndarfundir

Dagsetning Fundur Bókun
31.08.2016 78. fundur fjárlaganefndar Sala á landi ríkisins í Skerjafirði
Fundur var settur kl. 9:00 en síðan frestað til kl. 9:20.
Á fund nefndarinnar kom Hafsteinn Hafsteinsson frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu og fjallaði um minnisblað ráðuneytisins dags. 26. ágúst 2016 um sölu á landi í Skerjafirði. Einnig lagði hann fram afrit af samkomulagi um skipulag og uppbyggingu á landi ríkisins við Skerjafjörð sem gert var milli ríkissjóðs Íslands og Eignasjóðs Reykjavíkurborgar 1. mars 2013. Auk þess svaraði Hafsteinn spurningum nefndarmanna.