Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. október 1995. Útgáfa 119. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um eftirlit með ráðningu starfsmanna og húsnæðismálum ríkisstofnana
1974 nr. 97 31. desember
1. gr. Óheimilt er að fjölga föstum starfsmönnum í þjónustu ríkisins eða ríkisstofnana, nema að fengnu samþykki ráðninganefndar ríkisins, sbr. 6. gr.
Ákvæði þessarar greinar gilda þó ekki um þær stöður, sem stofnaðar eru með lögum.
2. gr. Óheimilt er að láta starfsmenn starfa í þjónustu ríkisins eða ríkisstofnana, nema fjárveiting eða heimild til launagreiðslu sé fyrir hendi. Þeir aðilar, sem sjá um launagreiðslur, geta fengið staðfestingu fjárlaga- og hagsýslustofnunarinnar á því, hvort slíkar heimildir séu fyrir hendi.
[Hlutaðeigandi ráðherra er þó heimilt að setja mann eða nefnd manna, um tiltekinn tíma, til að vera tilsjónarmenn stofnana, einnar eða fleiri í senn, ef sýnt þykir að kostnaður við rekstur þeirra fari fram úr þeim fjárveitingum sem fjárlög ákveða. Starfssvið tilsjónarmanna er að skipuleggja og hafa eftirlit með reikningshaldi og gerð fjárhagsáætlana stofnana og taka ákvarðanir um fjárskuldbindingar, þar á meðal um umfang starfsmannahalds, í samráði við ráðherra, eftir því sem nánar er lýst í erindisbréfi hverju sinni. Ráðherra skal enn fremur í erindisbréfi tilsjónarmanna kveða skýrt á um ábyrgðarsvið þeirra. Kostnaður við starf tilsjónarmanna greiðist af viðkomandi stofnun.] 1)
1)L. 1/1992, 36. gr.
3. gr. [Þegar starfsmaður, sem lög nr. 94/1986, um kjarasamninga opinberra starfsmanna, taka til, er ráðinn í þjónustu ríkisins skal það gert með skriflegum gerningi. Tekið skal fram hvort um er að ræða skipun, setningu eða ráðningu með gagnkvæmum uppsagnarfresti.
Starfsmaður, sem fellur undir skilgreiningu 1. mgr. og er ráðinn í starf sem heimilað er til að minnsta kosti eins árs, skal að loknum reynslutíma, sem tiltekinn er í vinnusamningi, teljast ráðinn með þriggja mánaða gagnkvæmum uppsagnarfresti nema starfsmaður óski annars. Nýtur hann þá þeirra réttinda og ber þær skyldur sem lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 38/1954, kveða á um.
Starfsmaður, sem fellur undir skilgreiningu 1. mgr. og er ráðinn til sumar- eða afleysingastarfa með eins mánaðar gagnkvæmum uppsagnarfresti, nýtur sömu réttinda og ber sömu skyldur og starfsmaður skv. 2. mgr. að öðru leyti en því sem leiða má af lengd uppsagnarfrests.] 1)
1)L. 7/1990, 4. gr.
4. gr. Ekki má setja á fót nýja ríkisstofnun, nema með lögum, og skal um starfsmannafjölda leita samþykkis með sama hætti og segir í 6. gr., að svo miklu leyti sem lög um stofnunina mæla eigi fyrir um það.
5. gr. Ráðninganefnd ríkisins skipa þrír menn, formaður fjárveitinganefndar, einn skipaður af ríkisstjórninni og einn af fjármálaráðherra, og er hann formaður nefndarinnar.
Varamann formanns fjárveitinganefndar skipar fjárveitinganefnd, en ríkisstjórn og fjármálaráðherra sinn hvorn varamann.
6. gr. Ráðninganefnd úrskurðar tillögur ráðuneyta og ríkisstofnana um starfsmenn og starfsmannafjölda.
Nú óskar ráðuneyti eftir fjölgun fastra starfsmanna við ráðuneytið eða ríkisstofnun á þess vegum án þess að fé hafi verið veitt til þess á fjárlögum eða heimild til launagreiðslu sé fyrir hendi, og skal þá ráðuneytið senda beiðnina til ráðninganefndar til úrskurðar.
7. gr. Ráðninganefnd skal jafnan úrskurða erindi innan hálfs mánaðar frá móttöku þess, enda hafi nefndinni borist fullnægjandi gögn og upplýsingar um málefnið.
Telji ráðninganefnd eigi augljóst, að erindi ráðuneytis skuli ná fram að ganga, skal hún jafnan kveðja fulltrúa þess ráðuneytis á sinn fund og kynna sér greinargerð hans, áður en erindið hlýtur afgreiðslu.
Synji ráðninganefnd erindi um fjölgun starfsmanna skv. 1. og 6. gr., getur ráðherra sá, sem hlut á að máli, borið ágreininginn undir ríkisstjórnina, sem tekur endanlega ákvörðun um málið.
8. gr. Nú vill stofnun, er lög þessi taka til, auka við húsnæði sitt, og skal þá með fara á sama hátt og segir í 6. og 7. gr. um fjölgun starfsmanna, eftir því sem við á.
9. gr. Fjármálaráðuneytið lætur gera eyðublöð fyrir ráðningarbréf, sem öllum stofnunum ríkisins er skylt að nota við ráðningu starfsmanna, sem ráðnir eru í hálft starf eða meira gegn föstum mánaðarlaunum og eigi eru skipaðir.
Starfsmaður á rétt á að fá í hendur afrit af ráðningarbréfi sínu staðfestu af viðkomandi ráðuneyti og fjármálaráðuneytinu.
[Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. geta fjármálaráðuneyti og viðkomandi ráðuneyti, ef um það er samkomulag, falið stjórnendum eða stjórnum stofnana að staðfesta ráðningarbréf starfsmanna. Slíka heimild getur fjármálaráðuneytið afturkallað einhliða með þriggja mánaða fyrirvara.] 1)
1)L. 119/1990, 3. gr.
10. gr. Semja skal árlega skrá yfir þá starfsmenn ríkisins, sem ákvæði 1. mgr. 3. gr. taka til og ráðnir eru í hálft starf eða meira með a.m.k. þriggja mánaða uppsagnarfresti. Fjármálaráðuneytið sér um gerð þessarar skrár, og skal hún lögð fram með fjárlagafrumvarpi.
11. gr. Fjármálaráðherra skal með reglugerð setja nánari ákvæði um framkvæmd laga þessara, þ. á m. um efni ráðningarbréfa.
12. gr. …
13. gr. Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 1975.