Lagasafn. Íslensk lög 1. október 1995. Útgáfa 119. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um stjórn fiskveiða
1990 nr. 38 15. maí
I. kafli.
Almenn ákvæði.
1. gr. Nytjastofnar á Íslandsmiðum eru sameign íslensku þjóðarinnar. Markmið laga þessara er að stuðla að verndun og hagkvæmri nýtingu þeirra og tryggja með því trausta atvinnu og byggð í landinu. Úthlutun veiðiheimilda samkvæmt lögum þessum myndar ekki eignarrétt eða óafturkallanlegt forræði einstakra aðila yfir veiðiheimildum.
2. gr. Til nytjastofna samkvæmt lögum þessum teljast sjávardýr, svo og sjávargróður, sem nytjuð eru og kunna að verða nytjuð í íslenskri fiskveiðilandhelgi og sérlög gilda ekki um.

Til fiskveiðilandhelgi Íslands telst hafsvæðið frá fjöruborði að ytri mörkum efnahagslögsögu Íslands eins og hún er skilgreind í
lögum nr. 41 1. júní 1979, um landhelgi, efnahagslögsögu og landgrunn.
3. gr. Sjávarútvegsráðherra skal, að fengnum tillögum Hafrannsóknastofnunarinnar, ákveða með reglugerð þann heildarafla sem veiða má á ákveðnu tímabili eða vertíð úr þeim einstökum nytjastofnum við Ísland sem nauðsynlegt er talið að takmarka veiðar á. Heimildir til veiða samkvæmt lögum þessum skulu miðast við það magn.

Leyfður heildarafli botnfisktegunda skal miðaður við veiðar á 12 mánaða tímabili, frá 1. september ár hvert til 31. ágúst á næsta ári, og nefnist það tímabil fiskveiðiár. Skal heildarafli fyrir komandi fiskveiðiár ákveðinn fyrir 1. ágúst ár hvert. Ráðherra er heimilt innan fiskveiðiársins að auka eða minnka leyfðan heildarafla einstakra botnfisktegunda, þó er óheimilt að breyta leyfðum heildarafla þorsks eftir 15. apríl. Heildarafli annarra tegunda sjávardýra skal ákveðinn með hæfilegum fyrirvara fyrir upphaf viðkomandi vertíðar eða veiðitímabils og er ráðherra heimilt að auka hann eða minnka á meðan vertíð eða veiðitímabil varir.
II. kafli.
Veiðileyfi og aflamark.
4. gr. Enginn má stunda veiðar í atvinnuskyni við Ísland nema hafa fengið til þess almennt veiðileyfi. Veiðileyfi skulu gefin út til árs í senn.

Ráðherra getur með reglugerð ákveðið að auk almenns veiðileyfis skuli veiðar á ákveðnum tegundum nytjastofna, veiðar í tiltekin veiðarfæri, veiðar ákveðinna gerða skipa eða veiðar á ákveðnum svæðum háðar sérstöku leyfi …
1) Getur ráðherra bundið leyfi og úthlutun þess þeim skilyrðum er þurfa þykir. Ráðherra getur m.a. ákveðið að aðeins hljóti leyfi ákveðinn fjöldi skipa, skip af ákveðinni stærð eða gerð eða skip er tilteknar veiðar stunda eða hafa áður stundað.
1)L. 36/1992, 5. gr.
5. gr. Við veitingu leyfa til veiða í atvinnuskyni koma til greina þau skip ein sem veiðileyfi fengu skv.
4. og
10. gr. laga nr. 3/1988, um stjórn fiskveiða, og ekki hafa horfið varanlega úr rekstri. Enn fremur bátar undir 6 brl. enda hafi beiðni um skráningu þeirra á skipaskrá Siglingamálastofnunar ríkisins eða sérstaka skrá stofnunarinnar fyrir báta undir 6 metrum borist ásamt fullnægjandi gögnum innan mánaðar frá gildistöku laga þessara. Auk þess skal gefinn kostur á veiðileyfi fyrir nýja báta undir 6 brl. enda hafi smíði þeirra hafist fyrir gildistöku laganna og haffærisskírteini verið gefið út innan þriggja mánaða frá þeim tíma.

[Falli veiðileyfi skips skv. 1. mgr. þessarar greinar niður má veita nýju eða nýkeyptu sambærilegu skipi veiðileyfi í þess stað enda hafi rétti til endurnýjunar ekki verið afsalað. Sé um að ræða endurnýjun báts, sem veiðar stundar með línu og handfærum með dagatakmörkunum skv. 1.–10. mgr. 6. gr., skal afkastageta hins nýja eða nýkeypta báts þó vera a.m.k. 50% minni en þess báts er veiðileyfi lætur. Ávallt skal nýr eða nýkeyptur bátur vera minni en 6 brúttótonn. Heimilt er að flytja veiðileyfi fleiri en eins skips til skips er veiðileyfi hlýtur. Þá er heimilt að veita fleiri en einu skipi veiðileyfi í stað skips er veiðileyfi lætur. Óheimilt er að gera breytingar á skipum sem leyfi hafa til veiða í atvinnuskyni þannig að afkastageta þeirra aukist nema annað skip eða önnur skip láti veiðileyfi á móti. Þetta á þó ekki við um breytingar á skipum sem veiðar stunda með aflamarki og leyfi fengu til veiða í atvinnuskyni fyrir 1. janúar 1986, en ekki skulu slíkar breytingar lagðar til grundvallar við mat á afkastagetu við endurnýjun skipsins síðar. Ráðherra skal með reglugerð setja nánari reglur um endurnýjun fiskiskipa.]
1)
1)L. 83/1995, 1. gr. Um gildistöku, sjá 6. gr. s.l.
6. gr. [Bátar minni en 6 brl., sem stundað hafa veiðar með línu og handfærum með dagatakmörkunum, krókabátar, skulu frá og með fiskveiðiárinu er hefst 1. september 1995 stunda veiðar með þeim takmörkunum er kveðið er á um í 2.–10. mgr. þessarar greinar. Þessum bátum er einungis heimilt að stunda veiðar með handfærum og línu. Þó er sjávarútvegsráðherra heimilt að veita þeim leyfi til að stunda veiðar á botndýrum með þeim veiðarfærum sem til þarf, svo sem plógum og gildrum og til hrognkelsaveiða í net.

Veiðar skulu bannaðar í desember og janúar sem og í sjö daga um páska og verslunarmannahelgi samkvæmt nánari ákvörðun ráðherra. Veiðar skulu enn fremur bannaðar aðra og fjórðu helgi hvers mánaðar auk föstudaga á undan hvorri helgi. Falli banndagar þessir saman við banndaga um páska eða verslunarmannahelgi flytjast þeir fram sem því nemur. Á banndögum eru allar veiðar óheimilar. Ráðherra getur þó veitt undanþágu frá þessu varðandi veiðar í sérhæfð veiðarfæri samkvæmt lokamálslið 1. mgr.

Krókabátum gefst frá og með fiskveiðiári því er hefst 1. september 1995 kostur á að velja milli þess að stunda veiðar með þorskaflahámarki skv. 4. mgr. og þess að stunda veiðar með viðbótarbanndögum eins og nánar er lýst í 5.–9. mgr.

Þorskaflahámark þeirra báta er þann kost velja skal samtals nema sama hlutfalli af 21.000 lestum, miðað við óslægðan fisk, og nam samanlagðri hlutdeild þessara báta í heildarþorskafla krókabáta á almanaksárinu 1994. Skal því skipt milli einstakra báta á grundvelli veiðireynslu viðkomandi báts almanaksárin 1992, 1993 og 1994. Skal við þá skiptingu fyrst taka tvö bestu árin varðandi þorskafla hvers báts og reikna meðalþorskafla bátsins á þeim árum. Sá hluti þannig reiknaðs meðalafla fyrir hvern bát, sem umfram er 50 lestir, skal síðan margfaldaður með stuðlinum 0,7. Þannig umreiknaður meðalafli tveggja bestu áranna skal lagður til grundvallar hlutfallslegri skiptingu sameiginlegs þorskaflahámarks milli einstakra báta. Við ákvörðun þorskaflahámarks skal ekki tekið tillit til frátafa frá veiðum á viðmiðunartímabilinu.

Fyrir þá báta sem velja viðbótarbanndaga skal fiskveiðiárinu skipt upp í fjögur veiðitímabil og hámarksafli þeirra ákveðinn á hverju tímabili. Veiðitímabil eru sem hér segir:
| 1. tímabil |
1. september til 30. nóvember. |
| 2. tímabil |
1. febrúar til 30. apríl. |
| 3. tímabil |
1. maí til 30. júní. |
| 4. tímabil |
1. júlí til 31. ágúst. |

Sameiginlegur hámarksafli þeirra báta er þennan kost velja telst sama hlutfall af 21.000 lestum af þorski, miðað við óslægðan fisk, og nam samanlagðri hlutdeild þessara báta í heildarþorskafla krókabáta á almanaksárinu 1994 og skal honum skipt þannig milli veiðitímabila að á fyrsta tímabil falla 24%, á annað tímabil 11%, á þriðja tímabil 32% og á fjórða tímabil 33%. Útgerðum báta er velja að stunda veiðar með þorskaflahámarki skv. 3. mgr. gefst kostur á að endurskoða val sitt í lok fiskveiðiársins 1995/1996 og velja í stað þess sóknardaga fyrir síðari fiskveiðiár enda tilkynni útgerð þá ákvörðun fyrir 1. ágúst 1996. Hækkar þá sameiginlegur hámarksafli samkvæmt þessari málsgrein sem nemur hlutdeild þeirra báta sem endurvalið tekur til í heildarþorskafla krókabáta á almanaksárinu 1994 og skal þorskafli þessara báta á einstökum tímabilum fiskveiðiársins 1995/1996 talinn með við ákvörðun sóknardaga á einstökum tímabilum fiskveiðiársins 1996/1997.

Fari þorskafli þeirra báta er þennan kost velja á einhverju veiðitímabili fram úr fyrrgreindu hámarki skal banndögum á sama tímabili á næsta fiskveiðiári fjölgað, í fyrsta sinn á fiskveiðiári því sem hefst 1. september 1995. Í því sambandi skal reikna meðalafla á dag á umræddu veiðitímabili liðins fiskveiðiárs og finna viðbótarbanndaga með því að deila þeirri tölu í viðkomandi umframafla. Skal banndögum fjölgað um heila daga og broti sleppt. Hámarksafli skv. 6. mgr. á viðkomandi tímabili næsta fiskveiðiárs skal lækka sem umframaflanum nemur.

Viðbótarbanndagar skulu falla á þær helgar sem veiðar eru ekki bannaðar á skv. 2. mgr. á viðkomandi tímabili og síðan bætast framan við fasta banndaga á viðkomandi tímabili. Þeim skal skipt eins jafnt niður og unnt er. Þó skulu fyrstu sjö viðbótarbanndagarnir á fyrsta tímabili vera í lok tímabilsins, fyrstu sjö viðbótarbanndagarnir á öðru tímabili vera í upphafi þess og fyrstu sjö viðbótarbanndagarnir á þriðja tímabili vera dagarnir fyrir sjómannadag. Á viðbótarbanndögum eru allar veiðar óheimilar. Ráðherra getur þó veitt undanþágu frá þessu varðandi veiðar í sérhæfð veiðarfæri samkvæmt lokamálslið 1. mgr. Frá og með því veiðitímabili er hefst 1. febrúar 1996 skal útgerð heimill að eigin vali tiltekinn fjöldi sóknardaga innan hvers veiðitímabils í stað viðbótarbanndaga samkvæmt þessari málsgrein. Skal fjöldi sóknardaga vera ákveðinn þannig að sókn sé heimil á 34% færri dögum á hverju tímabili en verið hefði með fastákveðnum viðbótarbanndögum. Heimilt er að flytja sóknardaga frá fyrsta og öðru veiðitímabili yfir á þriðja og fjórða veiðitímabil sama fiskveiðiárs, enda verði bátum ekki haldið til veiða á því veiðitímabili sem sóknardagar eru fluttir frá. Sóknardagar, sem fluttir eru á þennan hátt, skulu margfaldaðir með stuðlinum 0,5 og broti sleppt. Þannig umreiknuðum sóknardögum skal skipt jafnt milli þriðja og fjórða veiðitímabils. Útgerðir skulu tilkynna Fiskistofu um flutning á sóknardögum fyrir upphaf þess veiðitímabils sem sóknardagar eru fluttir frá. Annað veiðitímabil fiskveiðiársins 1996/1997 er fyrsta veiðitímabil sem heimilt er að flytja sóknardaga frá. Við útreikning á sóknardögum á hverju tímabili á næsta fiskveiðiári skal hlutfall afla, sem er jafnt hlutfall fluttra sóknardaga af heildarfjölda sóknardaga á tímabilinu, reiknast til afla þess tímabils sem sóknardagar voru fluttir frá. Ráðherra skal með reglugerð kveða nánar á um fyrirkomulag sóknardaga, eftirlit með þeim og hvernig tilkynnt skuli um flutning á sóknardögum. Ráðherra getur á sama hátt með reglugerð leyft flutning milli annarra tímabila.

Sé einn maður í áhöfn krókabáts er óheimilt að róa með og eiga í sjó fleiri en 12 bala af línu en 20 bala séu tveir eða fleiri í áhöfn. Miðað er við að 500 krókar séu á línu í hverjum bala.

Fiskistofa skal fyrir 1. júlí 1995 senda útgerðum tilkynningu um reiknað þorskaflahámark hvers báts og forsendur þess og hafa útgerðir mánaðarfrest til að tilkynna um val milli þorskaflahámarks og viðbótarbanndaga og sama frest til að koma að athugasemdum. Velji útgerð ekki fyrir tilskilinn tíma skulu bátnum ákvarðaðir viðbótarbanndagar. Skal Fiskistofa úrskurða um framkomnar athugasemdir eins fljótt og við verður komið. Sætti útgerðarmaður sig ekki við úrskurð Fiskistofu getur hann skotið málinu til sérstakrar kærunefndar er ráðherra skipar. Skal hún skipuð þremur mönnum og skal formaður hennar fullnægja skilyrðum til að vera skipaður héraðsdómari. Úrskurðir kærunefndar eru fullnaðarúrskurðir innan stjórnkerfisins.

Heimilt er án sérstaks leyfis að stunda fiskveiðar í tómstundum til eigin neyslu. Slíkar veiðar er einungis heimilt að stunda með handfærum án sjálfvirknibúnaðar. Afla, sem veiddur er samkvæmt heimild í þessari málsgrein, er óheimilt að selja eða fénýta á annan hátt.]
1)
1)L. 83/1995, 2. gr. Um gildistöku sjá 6. gr. s.l.
7. gr. Veiðar á þeim tegundum sjávardýra, sem ekki sæta takmörkun á leyfilegum heildarafla skv. 3. gr., eru frjálsar öllum þeim skipum, sem leyfi fá til veiða í atvinnuskyni skv. 4. gr., með þeim takmörkunum sem leiðir af almennum reglum um veiðisvæði, veiðarfæri, veiðitíma og reglum settum skv. 2. mgr. 4. gr.

Veiðiheimildum á þeim tegundum, sem heildarafli er takmarkaður af, skal úthlutað til einstakra skipa. Skal hverju skipi úthlutað tiltekinni hlutdeild af leyfðum heildarafla tegundarinnar. Nefnist það aflahlutdeild skips og helst hún óbreytt milli ára, sbr. þó 4. málsl. þessarar málsgreinar.

[Áður en leyfðum heildarafla er skipt á grundvelli aflahlutdeildar skal draga eftirtalinn afla frá:
1. Áætlaðan afla báta er stunda veiðar með línu og handfærum skv. 1.–6. mgr. 6. gr.
2. Línuafla í samræmi við 6. mgr. 10. gr. og skal línuaflinn skiptast milli þorsks og ýsu á grundvelli skiptingar á síðasta fiskveiðiári.
3. Aflaheimildir sem nota skal til jöfnunar, sbr. 9. gr.]
1)

Aflamark skips á hverju veiðitímabili eða vertíð ræðst af leyfðum heildarafla viðkomandi tegundar og hlutdeild skipsins í þeim heildarafla skv. 2. mgr., sbr. þó ákvæði 9. gr. Skal [Fiskistofa]
2) senda sérstaka tilkynningu vegna hvers skips um aflamark þess í upphafi veiðitímabils eða vertíðar.
1)L. 87/1994, 3. gr. 2)L. 36/1992, 6. gr.
8. gr. Verði veiðar takmarkaðar skv. 3. gr. á tegundum sjávardýra sem samfelld veiðireynsla er á, en ekki hafa áður verið bundnar ákvæðum um leyfðan heildarafla, skal aflahlutdeild úthlutað á grundvelli aflareynslu síðustu þriggja veiðitímabila.

Ef ekki er fyrir hendi samfelld veiðireynsla á viðkomandi tegund skal ráðherra ákveða aflahlutdeild einstakra skipa. Getur hann við þá ákvörðun tekið mið af fyrri veiðum, stærð eða gerð skips. Getur ráðherra bundið úthlutun samkvæmt þessari málsgrein því skilyrði að skip afsali sér heimildum til veiða á öðrum tegundum.
9. gr. [Á hverju fiskveiðiári skulu aflaheimildir af botnfiski, er nema 12.000 þorskígildum í lestum talið, vera til ráðstöfunar til að mæta áföllum sem fyrirsjáanleg eru vegna verulegra breytinga á aflamarki einstakra tegunda. Skal þessum aflaheimildum skipt milli botnfisktegunda í hlutfalli við leyfðan heildarafla af einstökum tegundum og verðmætahlutföll sem ráðherra ákveður.

Skal ráðherra árlega ákveða með reglugerð ráðstöfun þessara heimilda þannig að þær nýtist útgerðum þeirra skipa sem fyrir mestri skerðingu hafa orðið.

Sé aflaheimildum ekki ráðstafað til uppbóta samkvæmt þessari grein bætast þær við heildaraflamark viðkomandi tegunda og koma til úthlutunar í samræmi við aflahlutdeild einstakra skipa.]
1)
1)L. 87/1994, 4. gr.
10. gr. Heimilt er að veiða umfram úthlutað aflamark af tiltekinni botnfisktegund allt að 5% af heildarverðmæti botnfiskaflamarks, enda skerðist aflamark annarra botnfisktegunda hlutfallslega miðað við verðmæti samkvæmt ákvörðun ráðuneytis í upphafi árs. Heimild þessarar málsgreinar nær þó ekki til veiða umfram úthlutað aflamark af þorski.

Hafi aflamark verið flutt milli skipa skv. 12. gr. flyst heimild til breytinga skv. 1. mgr. frá skipi sem flutt er af til þess skips sem flutt er til.

[Heimilt er að flytja allt að 20% af aflamarki hverrar botnfisktegundar og aflamarki úthafsrækju, humars og síldar frá einu fiskveiðiári yfir á það næsta.]
1)

[Þá er heimilt að veiða allt að 5% umfram aflamark hverrar botnfisktegundar og úthafsrækju og 3% umfram aflamark innfjarðarrækju, enda dregst sá umframafli frá við úthlutun aflamarks næsta fiskveiðiárs á eftir.]
2)

Beita skal skerðingarákvæðum 1. mgr. áður en heimild 3. mgr. er nýtt. Heimild 4. mgr. rýmkar ekki heimildir til breytinga milli fisktegunda skv. 1. mgr.

[Fiskur, sem veiðist á línu í mánuðunum nóvember, desember, janúar og febrúar, skal aðeins að hálfu talinn til aflamarks þar til sameiginlegur línuafli af þorski og ýsu hefur náð 34.000 lestum miðað við óslægðan fisk.]
3) Ráðherra getur ákveðið með reglugerð að fiskur undir tiltekinni stærð teljist aðeins að hluta með í aflamarki.

Þá getur ráðherra ákveðið að afli á ákveðnum fisktegundum, sem fluttur er óunninn á erlendan markað, skuli reiknaður með álagi þegar metið er hversu miklu af aflamarki skips er náð hverju sinni. Skal álagið vera allt að 20% á þorsk og ýsu en allt að 15% á aðrar tegundir.
1)L. 87/1994, 5. gr. 2)L. 83/1995, 3. gr. 3)L. 87/1994, 6. gr.
11. gr. Sé rekstri skips hætt, sbr. 2. mgr. 5. gr., skal úthluta nýju eða nýkeyptu skipi í eigu sama aðila aflahlutdeild hins eldra skips, enda sé um sambærilegt skip að ræða. Farist skip skal útgerð þess halda aflamarki skipsins í 12 mánuði talið frá upphafi næsta mánaðar eftir að skip fórst enda þótt nýtt eða nýkeypt skip hafi ekki komið í þess stað innan þess tíma.

Við eigendaskipti að fiskiskipi fylgir aflahlutdeild þess, nema aðilar geri sín á milli skriflegt samkomulag um annað, enda sé fullnægt ákvæðum 3. og 4. mgr. þessarar greinar.

Eigi að selja fiskiskip, sem leyfi hefur til veiða í atvinnuskyni, til útgerðar sem heimilisfesti hefur í öðru sveitarfélagi en seljandi á sveitarstjórn í sveitarfélagi seljanda forkaupsrétt að skipinu. Forkaupsréttur skal boðinn skriflega þeirri sveitarstjórn sem hlut á að máli og söluverð og aðrir skilmálar tilgreindir á tæmandi hátt. Sveitarstjórn skal svara forkaupsréttartilboði skriflega innan fjögurra vikna frá því henni berst tilboð og fellur forkaupsréttur niður í það sinn sé tilboði ekki svarað innan þess frests.

Neyti sveitarstjórn forkaupsréttar skv. 3. mgr. þessarar greinar skal hún þegar gefa útgerðaraðilum, sem heimilisfesti eiga í sveitarfélaginu, kost á að kaupa skipið og skal opinberlega leita tilboða í það.

Sé skipi ráðstafað andstætt ákvæðum þessarar greinar um forkaupsrétt getur forkaupsréttarhafi krafist þess að salan verði ógild enda sé málsókn hafin innan sex mánaða frá því að hann fékk vitneskju um söluna. Forkaupsréttur gildir ekki sé skip selt á opinberu uppboði. Ákvæði þessarar greinar um forkaupsrétt gilda ekki við sölu opinna báta.

Heimilt er að framselja aflahlutdeild skips að hluta eða öllu leyti og sameina hana aflahlutdeild annars skips, enda leiði flutningur aflahlutdeildar ekki til þess að veiðiheimildir þess skips, sem flutt er til, verði bersýnilega umfram veiðigetu þess. Þó skal framsalið háð samþykki [Fiskistofu]
1) hafi það skip, sem flutt er til, ekki aflahlutdeild af þeirri tegund sem framseld er. Tafarlaust skal leita staðfestingar [Fiskistofu]
1) á að flutningur aflaheimildar sé innan heimilaðra marka. Öðlast slíkur flutningur ekki gildi fyrr en staðfesting [Fiskistofu]
1) liggur fyrir. Ekki er heimilt að framselja þann hluta aflahlutdeildar skips, sem rekja má til uppbóta samkvæmt ákvæði I til bráðabirgða, fyrr en að liðnum fimm árum frá gildistöku laga þessara, enda hafi skipi, sem framselt er af, verið haldið til veiða allt það tímabil.
1)L. 36/1992, 8. gr.
12. gr. Heimilt er að færa aflamark milli skipa sömu útgerðar eða skipa sem gerð eru út frá sömu verstöð eftir því sem hlutaðeigandi aðilar koma sér saman um enda hafi það skip, sem fært er til, aflahlutdeild af þeirri tegund sem millifærð er. Sama gildir um skipti á aflamarki milli skipa sem ekki eru gerð út frá sömu verstöð, enda sé um jöfn skipti að ræða að mati [Fiskistofu].
1)

Tilkynna skal [Fiskistofu]
1) fyrir fram um flutning aflamarks milli skipa og öðlast hann ekki gildi fyrr en [stofan]
1) hefur staðfest móttöku tilkynningar um flutninginn frá þeim sem hlut eiga að máli.

Annar flutningur á aflamarki milli skipa er óheimill nema með samþykki [Fiskistofu]
1) og að fenginni umsögn sveitarstjórnar og stjórnar sjómannafélags í viðkomandi verstöð.

…
2)

[Veiði fiskiskip minna en 50% af samanlögðu aflamarki sínu í þorskígildum talið tvö fiskveiðiár í röð fellur veiðileyfi þess og aflahlutdeild niður og skal aflahlutdeild annarra skipa í viðkomandi tegundum hækka sem því nemur.]
3) Skal við mat á þessu hlutfalli miðað við verðmæti einstakra tegunda í aflamarki skips samkvæmt ákvörðun ráðuneytis í upphafi árs. [Viðmiðunarhlutfall, sem ákveðið er í þessari málsgrein, lækkar þó um 5% fyrir hverja fulla 30 daga sem skipi er haldið til veiða utan fiskveiðilandhelgi Íslands á fiskveiðiárinu.]
4)
1)L. 36/1992, 9. gr. 2)L. 83/1995, 4. gr. 3)L. 87/1994, 8. gr. 4)L. 87/1994, 9. gr.
III. kafli.
Framkvæmd og eftirlit.
13. gr. Ráðherra getur sett nánari reglur varðandi framkvæmd laga þessara.
1)
1)Rg. 481/1990 og 499/1990.
Augl. 68/1994. Rg. 133/1995, 202/1994, sbr. 347/1995; 414/1994, sbr. 452/1994; 492/1993, sbr. 482/1994; 612/1994, 618/1994 og 310/1995.
14. gr. Sérstök samráðsnefnd, skipuð einum fulltrúa tilnefndum sameiginlega af samtökum sjómanna og einum tilnefndum af samtökum útvegsmanna, auk formanns sem skipaður er af ráðherra án tilnefningar, skal fjalla um álita- og ágreiningsmál varðandi veiðileyfi, úthlutun aflahlutdeildar og aflamark samkvæmt lögum þessum og reglugerðum settum samkvæmt þeim og gera tillögur til ráðherra um úrlausn þeirra.
15. gr. Skipstjórnarmenn veiðiskipa, sem hljóta veiðileyfi í atvinnuskyni skv. 5. gr., skulu halda sérstakar afladagbækur sem [Fiskistofa]
1) leggur til. Skal með reglugerð kveða nánar á um þær upplýsingar sem skrá skal í afladagbækur, form þeirra og skil til [Fiskistofu].
1)

Útgerðarmönnum, skipstjórnarmönnum og kaupendum afla, svo og umboðsmönnum, útflytjendum, flutningsaðilum, bönkum og lánastofnunum, er skylt að láta ráðuneytinu eða [Fiskistofu]
1) ókeypis í té og í því formi, sem ráðherra ákveður, allar þær upplýsingar sem unnt er að láta í té og nauðsynlegar eru taldar vegna eftirlits með framkvæmd laga þessara.
1)L. 36/1992, 10. gr.
16. gr. Afli skal ávallt veginn á löndunarstað. Hafnaryfirvöld á hverjum löndunarstað skulu hafa yfirumsjón með vigtun afla og söfnun upplýsinga um landaðan afla. [Starfsmönnum hafnaryfirvalda er heimill aðgangur að fiskiskipum, flutningsförum, fiskverkunum og birgðageymslum sem nauðsynlegur er til að vigta sjávarafla eða hafa eftirlit með vigtun hans. Hafnaryfirvöld skulu senda Fiskistofu jafnharðan upplýsingar um landaðan afla í því formi sem ráðherra ákveður með reglugerð.]
1)

Ráðuneytið skal að höfðu samráði við samgönguráðuneytið og Hafnasamband sveitarfélaga kveða nánar á í reglugerð um hvernig afli skuli veginn og upplýsingum um landað aflamagn safnað.

Sé afli unninn um borð í veiðiskipi skal skylt að halda sérstaka vinnsludagbók, sem [Fiskistofa]
2) leggur til, um vinnslu aflans. Skipum, sem vinna afla um borð, er óheimilt að sigla með afurðir til sölu á mörkuðum erlendis án sérstaks leyfis [Fiskistofu].
2) [Fiskistofa]
2) getur bundið slík leyfi því skilyrði að útgerð skipsins greiði kostnað vegna ferðar eftirlitsmanns [stofunnar]
2) til að fylgjast með löndun úr skipinu erlendis eða skipið komi til hafnar á Íslandi vegna eftirlits.
1)L. 87/1994, 10. gr. 2)L. 36/1992, 11. gr.
17. gr. [Fiskistofa]
1) annast eftirlit með framkvæmd laga þessara og hefur í því skyni sérstaka eftirlitsmenn í sinni þjónustu.

Jafnframt því sem þessir eftirlitsmenn sinna verkefnum skv.
8. gr. laga nr. 81 31. maí 1976 og eftirliti með reglum settum samkvæmt heimild í þeim lögum skulu þeir fylgjast með löndun, vigtun og vinnslu afla, enn fremur útflutningi afla eða afurða eins og nánar er kveðið á í lögum þessum, reglugerðum settum samkvæmt þeim og í erindisbréfi.
2)

Eftirlitsmönnum er heimilt að fara í veiðiferðir með fiskiskipum og að fara um borð í skip til athugunar á farmi og veiðarfærum. Enn fremur skal þeim heimill aðgangur að öllum vinnslusölum fiskverkana og birgðageymslum.

[Ráðherra getur með reglugerð ákveðið að settur skuli, á kostnað útgerða, sjálfvirkur eftirlitsbúnaður til fjareftirlits um borð í fiskiskip.]
3)
1)L. 36/1992, 12. gr. 2)Erbr. 87/1995. 3)L. 83/1995, 5. gr.
18. gr. Ráðherra skal með reglugerð ákveða sérstakt gjald — veiðieftirlitsgjald — fyrir veiðiheimildir sem veittar eru á grundvelli laga þessara eða annarra laga er kveða á um stjórn fiskveiða. Skal gjaldið renna til reksturs veiðieftirlits …
1) og skal upphæð þess miðast við að það standi undir rekstri eftirlitsins …
2)

Gjald vegna tilkynningar um aflamark skal miðast við áætlað verðmæti þess aflamarks sem úthlutað er. Skal ráðherra árlega áætla hlutfallslegt verðmæti einstakra tegunda í þessu skyni. Aldrei skal gjald samkvæmt þessari málsgrein vera hærra en [0,4%]
2) af áætluðu verðmæti þess afla sem aflamark skips heimilar veiðar á á komandi fiskveiðiári, vertíð eða veiðitímabili. Gjald fyrir hverja tilkynningu um aflamark skal þó aldrei vera lægra en [2.000 kr.]
2) og er sú fjárhæð grunntala er miðast við byggingarvísitölu í janúar 1991 og breytist í hlutfalli við þær breytingar sem síðar kunna að verða á henni.

Fyrir veitingu almenns leyfis til veiða í atvinnuskyni og veiðileyfa, sem veitt verða á grundvelli 2. mgr. 4. gr., skal greiða [10.000 kr.]
2) Ráðherra er heimilt að hækka gjaldið er nemur hlutfallslegri hækkun er kann að verða á vísitölu byggingarkostnaðar, sbr.
l. nr. 42/1987. Grunntaxti gjaldsins er miðaður við byggingarvísitölu í desember 1989, þ.e. 157,9 stig.

Útgerð skips skal greiða fæði veiðieftirlitsmanna og sjá þeim endurgjaldslaust fyrir aðstöðu meðan þeir stunda eftirlitsstörf um borð.

[Fyrir staðfestingu Fiskistofu á flutningi aflahlutdeildar milli skipa skal útgerð þess skips sem flutt er frá greiða 1.500 kr.

Gjald skv. 5. mgr. er grunngjald er miðast við byggingarvísitölu í janúar 1994 og breytist í hlutfalli við þær breytingar er á henni kunna að verða.]
3)
1)L. 87/1994, 11. gr. 2)L. 1/1992, 5. gr. 3)L. 87/1994, 12. gr.
IV. kafli.
Viðurlög o.fl.
19. gr. Brot gegn ákvæðum laga þessara, reglum settum samkvæmt þeim eða ákvæðum leyfisbréfa varða sektum nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum.

Um mál þau, sem rísa út af brotum gegn lögum þessum, skal fara að hætti opinberra mála.
20. gr. [Beita skal ákvæðum
laga nr. 37 27. maí 1992, um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla, með síðari breytingum, vegna brota gegn þessum lögum eftir því sem við á.]
1)

Ráðuneytinu er enn fremur heimilt, vegna brota á ákvæðum laga þessara, reglna settra samkvæmt þeim og leyfisbréfa, að svipta skip heimild til veiða í tiltekinn tíma og varða veiðar eftir leyfissviptingu m.a. upptöku skv. 1. mgr. Sama gildir verði vanskil á greiðslu andvirðis ólöglegs sjávarafla sem sætt hefur upptöku.
1)L. 87/1994, 13. gr.
V. kafli.
Ýmis ákvæði.
21. gr. Þrátt fyrir ákvæði
3. gr. laga nr. 81 31. maí 1976, með áorðnum breytingum, skulu veiðar með vörpu heimilaðar á vannýttum fisktegundum á ákveðnum svæðum samkvæmt reglum er ráðherra setur.
22. gr. …
23. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi og koma til framkvæmda 1. janúar 1991. …
Ákvæði til bráðabirgða. …
[IX. Á tímabilinu 1. september 1994 til 31. desember 1995 skulu eftirfarandi takmarkanir gilda um framsal aflamarks til viðbótar þeim takmörkunum er um ræðir í 12. gr.

Þegar meira en 15% af aflamarki því af einhverri tegund, sem úthlutað er til skips í upphafi fiskveiðiárs, hefur verið flutt frá skipinu er óheimilt á sama fiskveiðiári að flytja aflamark af sömu tegund til skipsins. Á sama hátt er óheimilt að flytja aflamark frá skipi þegar meira en sem svarar 15% af upphaflegu aflamarki skipsins af viðkomandi tegund hefur verið flutt til skipsins á fiskveiðiárinu. Flutningur milli skipa í eigu sömu útgerðar og jöfn skipti sæta ekki takmörkunum samkvæmt þessari málsgrein. Fiskistofu er heimilt að veita undanþágu frá banni við flutningi aflamarks frá skipi ef alvarlegar bilanir verða þess valdandi að veiðiheimildir þess nýtast ekki.

Aldrei er heimilt að flytja aflamark milli skipa leiði slíkur flutningur til þess að veiðiheimildir þess skips sem flutt er til verði bersýnilega umfram veiðigetu þess.]
1)
1)L. 87/1994, brbákv.
[X. Á fiskveiðiárunum 1995/1996 til og með 1998/1999 skal árlega ráðstafa 5.000 lestum af þorski til jöfnunar samkvæmt þessu ákvæði. Aflaheimildir þessar miðast við óslægðan fisk og skulu þær dregnar frá leyfðum heildarafla þorsks áður en honum er skipt á grundvelli aflahlutdeildar, sbr. 3. mgr. 7. gr.

Aflaheimildum skv. 1. mgr. skal árlega úthlutað til þeirra skipa sem orðið hafa fyrir mestri skerðingu við úthlutun aflamarks frá fiskveiðiárinu 1991/1992 til þess fiskveiðiárs er úthlutunin varðar. Skal úthlutunin framkvæmd eftir að ákvörðun hefur verið tekin um ráðstöfun aflaheimilda skv. 9. gr. og miðast við að skerðing umfram tiltekin mörk skuli að fullu bætt, þó þannig að ekkert skip fái meira en 10 lestir af þorski, miðað við slægðan fisk, í sinn hlut árlega. Skip, sem leyfi hafa til fullvinnslu botnfiskafla um borð, sbr.
lög nr. 54/1992, skulu ekki njóta bóta samkvæmt þessu ákvæði.

Ráðherra skal með reglugerð kveða nánar á um úthlutun samkvæmt þessari grein. Skal hann m.a. kveða á um við hvaða tíma skuli miða aflahlutdeild. Þá er ráðherra heimilt að ákveða að litið skuli í heild á veiðiheimildir skipa í eigu sömu útgerðar varðandi bótaútreikning ef ástæða er til að ætla að reynt verði að hafa áhrif á bótaútreikning með millifærslu aflahlutdeildar milli skipa.

Á fiskveiðiárinu 1994/1995 skal úthluta sérstaklega til jöfnunar þeim hluta aflahámarks vegna línutvöföldunar skv. 6. mgr. 10. gr. sem ekki nýttist við línuveiðar í nóvember til febrúar. Skal þessum aflaheimildum úthlutað í samræmi við reglur 2. og 3. mgr. þessa ákvæðis eftir því sem við á og skal í þeim efnum miða við aflahlutdeild einstakra skipa 1. maí 1995.

Við ráðstöfun aflaheimilda skv. 9. gr. á því tímabili sem um getur í 1. mgr. þessa ákvæðis er heimilt að taka mið af breytingum í aflamarki sem orðið hafa á lengra tímabili en milli fiskveiðiára.]
1)
1)L. 83/1995, brbákv. I.
[XI. Á fiskveiðiárunum 1995/1996 til og með 1998/1999 skal Byggðastofnun árlega hafa til ráðstöfunar þorskaflahámark er nemur 500 lestum miðað við óslægðan fisk. Skal Byggðastofnun árlega ráðstafa þessum aflaheimildum til krókabáta sem gerðir eru út frá byggðarlögum sem algjörlega eru háð veiðum slíkra báta og standa höllum fæti. Frá og með fiskveiðiárinu 1999/2000 skal sjávarútvegsráðherra með reglugerð ráðstafa þessum aflaheimildum til krókabáta.]
1)
1)L. 83/1995, brbákv. II.
[XII. Sjávarútvegsráðherra skal tafarlaust láta fara fram könnun á þeim kostum sem fyrir hendi eru til fjareftirlits með sjálfvirkum búnaði með fiskiskipum. Skal að því stefnt að kerfi er hafi virkt eftirlit með nýtingu sóknardaga báta sem krókaveiðar stunda verði komið á fyrir 1. febrúar 1996. Takist það ekki skal ráðherra með reglugerð kveða á um tilkynningarskyldu og eftirlit með þessum veiðum með öðrum hætti sem hann telur fullnægjandi.]
1)
1)L. 83/1995, brbákv. III.