Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. janúar 1999. Útgáfa 123a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um geislavarnir
1985 nr. 117 31. desember
I. kafli. Tilgangur og gildissvið.
1. gr. Lögum þessum er ætlað að tryggja nauðsynlegar öryggisráðstafanir gegn jónandi geislun frá geislavirkum efnum og geislatækjum í því skyni að koma í veg fyrir skaðleg áhrif slíkrar geislunar.
Með jónandi geislun er átt við geislun frá geislavirkum efnum, röntgengeislun eða aðra geislun sem hefur hliðstæð líffræðileg áhrif.
Með geislatækjum er átt við tæki sem innihalda geislavirkt efni eða framleiða jónandi geislun.
2. gr. Með markvissum aðgerðum skal vinna að þessu, m.a. með nauðsynlegu eftirliti með innflutningi og allri meðferð geislavirkra efna og geislatækja, svo og með athugunum og rannsóknum á sviði geislavarna. Enn fremur með alhliða fræðslu og upplýsingum um geislavarnir.
3. gr. Lög þessi gilda um öryggisráðstafanir gegn geislun frá geislavirkum efnum og geislatækjum, að svo miklu leyti sem það er ekki falið öðrum samkvæmt alþjóðasamningum.
II. kafli. Geislavarnir ríkisins.
4. gr. Ríkið rekur stofnun er nefnist Geislavarnir ríkisins sem er sjálfstæð stofnun undir yfirstjórn heilbrigðismálaráðherra. Stofnunin hefur það hlutverk að annast öryggisráðstafanir gegn geislun frá geislavirkum efnum og geislatækjum.
Ráðherra skipar stofnuninni stjórn sem í eiga sæti þrír menn með sérþekkingu á viðfangsefnum stofnunarinnar. Ráðherra skipar formann. Skipunartími stjórnarinnar er fjögur ár.
5. gr. [Ráðherra skipar forstöðumann stofnunarinnar til fimm ára í senn að fengnum tillögum stjórnar.] 1) Skal hann hafa viðurkennt háskólapróf á sviði eðlisfræði og sérmenntun og starfsreynslu á sviði geislavarna sem heilbrigðisyfirvöld meta gilda.
1)L. 83/1997, 56. gr.
6. gr. Forstöðumaður annast daglega stjórn stofnunarinnar. Hann undirbýr fundi stjórnarinnar og situr þá með tillögurétti og málfrelsi. [Forstöðumaður ræður starfsfólk stofnunarinnar.] 1)
1)L. 83/1997, 57. gr.
7. gr. Auk þess, sem tiltekið er í lögum þessum, skulu Geislavarnir ríkisins annast:
1. Fræðslu um geislavarnir fyrir starfsfólk er vinnur við jónandi geisla, svo og upplýsingar fyrir almenning og fjölmiðla.
2. Eftirlit með geislaskömmtum starfsfólks er vinnur við jónandi geisla.
3. Hvers konar eftirlit og athuganir sem nauðsynlegar eru samkvæmt lögum þessum, reglugerðum eða reglum settum samkvæmt þeim.
4. Rannsóknir á sviði geislavarna.
5. Eftirlit og umsjón með að lögum þessum, reglugerðum og reglum settum samkvæmt þeim sé fylgt.
6. Önnur verkefni á sviði geislavarna eftir nánari ákvörðun ráðherra.
8. gr. Ráðherra getur falið stofnuninni að fjalla um tiltekin mál eða verkefni skyld þeim verkefnum er þessi lög fjalla um.
9. gr. Ráðherra setur með reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd laga þessara svo og um starfsemi Geislavarna ríkisins og eftirlit á þess vegum. 1)
1)Rg. 5/1968, sbr. 274/1981 og 445/1982 (Geislavarnir ríkisins. Sett skv. l. 95/1962). Rg. 449/1982, sbr. 650/1983, 153/1984, 136/1985, 241/1987 og 14/1988. Rg. 356/1986. Rg. 516/1993. Rg. 517/1993.
III. kafli. Leyfi til innflutnings, framleiðslu, eignar, sölu og afhendingar.
10. gr. Enginn má framleiða eða flytja inn, eiga eða selja, hafa undir höndum eða afhenda öðrum geislavirk efni, hvort sem þau eru hrein, blönduð öðrum efnum eða byggð í tæki, né tæki sem geta framleitt jónandi geisla, nema hann hafi fengið til þess leyfi samkvæmt lögum þessum, sbr. þó 12. gr.
11. gr. Heilbrigðismálaráðherra veitir leyfi samkvæmt 10. gr. Ráðherra er heimilt með reglugerð að fela Geislavörnum ríkisins útgáfu slíkra leyfa. Umsóknir um leyfi þessi skulu ritaðar á sérstök eyðublöð er Geislavarnir ríkisins láta gera.
12. gr. Eigi þarf leyfi samkvæmt 11. gr. vegna:
1. Sjálflýsandi úra, vasaáttavita, mæla og annarra slíkra tækja er innihalda mjög lítið magn geislavirkra efna, eftir nánari ákvörðun Geislavarna ríkisins.
2. Ratsjáa, sjónvarpstækja, rafeindasmásjáa og annarra slíkra tækja, eftir nánari ákvörðun Geislavarna ríkisins, enda séu þau ekki til þess ætluð að framleiða jónandi geisla.
13. gr. Geislatæki og geislavirk efni, sem notuð eru til sjúkdómsgreininga eða til meðferðar, skulu vera í eigu viðurkenndra heilbrigðis-, rannsókna- og menntastofnana eða lækna, tannlækna og dýralækna, eftir því sem við á hverju sinni.
IV. kafli. Uppsetning og breytingar á geislatækjum.
14. gr. Þegar setja skal upp geislatæki eða breyta slíkum tækjum skal senda Geislavörnum ríkisins áætlun um verkið. Óheimilt er að hefja verkið fyrr en fengið er samþykki þeirra.
V. kafli. Eftirlit með geislatækjum og geislavirkum efnum.
15. gr. Geislavarnir ríkisins skulu annast reglubundið eftirlit með geislatækjum og geislavirkum efnum sem leyfi þarf fyrir samkvæmt 11. gr. Í því skyni skal starfsmönnum Geislavarna ríkisins heimill frjáls aðgangur að sérhverjum þeim stað þar sem þessi tæki og efni eru notuð og geymd. Þess ber að gæta að eftirlitið valdi sem minnstri röskun á daglegri starfrækslu tækja og efna.
16. gr. Geislavarnir ríkisins skulu fyrirskipa eigendum geislatækja og geislavirkra efna að framkvæma þær lagfæringar sem taldar eru nauðsynlegar. Ef lagfæringar eru eigi framkvæmdar innan tiltekins frests er heimilt að banna frekari notkun tækja og efna þar til lagfæring hefur farið fram.
17. gr. Sé öryggisútbúnaði stórlega ábótavant skulu Geislavarnir ríkisins banna frekari notkun tækja og efna þar til lagfæring hefur farið fram.
18. gr. Skráður eigandi tækis eða efnis, sem eftirlitsskylt er samkvæmt lögum þessum, skal greiða sérstakt gjald vegna eftirlitsins. Gjaldinu skal varið til þess að standa undir kostnaði við eftirlitsstarfsemi Geislavarna ríkisins.
Heilbrigðismálaráðherra setur gjaldskrá vegna eftirlitsins og annarrar þjónustu, að fengnum tillögum Geislavarna ríkisins. Um innheimtu skal kveða á í reglugerð. Eftirlitsgjöld skulu tryggð með lögveðsrétti í hinu eftirlitsskylda tæki í 2 ár eftir gjalddaga.
VI. kafli. Notkun geislavirkra efna og geislatækja.
19. gr. Óheimilt er að hefja eða breyta starfsemi, þar sem notuð eru geislavirk efni eða geislatæki, án leyfis Geislavarna ríkisins.
20. gr. Geislavirk efni og geislatæki eru starfrækt á ábyrgð eiganda. Við sjúkdómsgreiningu eða meðferð skulu þau starfrækt undir handleiðslu og faglegri ábyrgð læknis, dýralæknis eða tannlæknis, eftir því sem við á.
21. gr. Við hönnun og byggingu húsnæðis og annarrar aðstöðu fyrir starfsemi, þar sem nota á geislavirk efni eða geislatæki, skal leitað álits Geislavarna ríkisins á því, hvort fyrirhugað húsnæði, aðstaða og búnaður uppfylli kröfur sem gerðar eru um geislavarnir.
VII. kafli. Ýmis ákvæði.
22. gr. Heilbrigðismálaráðherra getur ákveðið, að fengnum tillögum Geislavarna ríkisins, að það, sem segir í lögum þessum um jónandi geislun, skuli einnig gilda að fullu eða að hluta um ekki-jónandi geislun.
Með ekki-jónandi geislun er átt við útfjólubláa geislun, laser-geislun, 1) örbylgjugeislun eða aðra geislun sem hefur hliðstæð líffræðileg áhrif.
1)Rg. 120/1988.
23. gr. Fyrir brot gegn lögum þessum og reglugerðum settum samkvæmt þeim skal refsað með sektum eða [fangelsi allt að 2 árum] 1) séu sakir miklar. Með mál, sem rísa út af brotum gegn lögum þessum, skal farið að hætti opinberra mála.
1)L. 82/1998, 180. gr.
24. gr. Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 1986. …