Lagasafn. Íslensk lög 1. febrúar 2011. Útgáfa 139a. Prenta í tveimur dálkum.
[Lög um lánasýslu ríkisins]1)
1990 nr. 43 16. maí
1)L. 138/2007, 10. gr.
Ferill málsins á Alþingi.
Frumvarp til laga.
Tóku gildi 22. maí 1990. Breytt með l. 83/1997 (tóku gildi 6. júní 1997) og l. 138/2007 (tóku gildi 1. jan. 2008).
1. gr. [Fjármálaráðherra fer með lántökur ríkissjóðs og ríkisstofnana innan lands og utan, útgáfu og sölu ríkisskuldabréfa á innlendum markaði og aðra skuldaumsýslu fyrir ríkissjóð, svo og endurlán lánsfjár, ríkisábyrgðir og Ríkisábyrgðasjóð.]
1)
1)L. 138/2007, 1. gr.
2. gr. [Lánasýsla ríkisins skal stefna]
1) að eftirfarandi meginmarkmiðum:
1. Halda erlendum og innlendum vaxta- og fjármagnskostnaði ríkisins í lágmarki.
2. Dreifa gengis-, vaxta- og verðlagsáhættu vegna skulda ríkisins á sem hagkvæmastan hátt.
3. Draga úr áhættu ríkissjóðs vegna ábyrgða og endurlána.
4. Efla markað fyrir ríkisverðbréf á innlendum fjármagnsmarkaði með kynningu og þjónustu.
5. Efla lánstraust íslenska ríkisins á erlendum lánsfjármörkuðum og bæta þannig lánskjör þjóðarinnar erlendis.
1)L. 138/2007, 2. gr.
[3. gr.]1) [Fjármálaráðherra]
2) semur fyrir hönd ríkissjóðs um lán, endurlánar fé og veitir ábyrgðir …
2) innan heimilda sem Alþingi veitir hverju sinni.

[Fjármálaráðherra]
2) er heimilt í nafni ríkissjóðs að taka lán og endurlána fé í stað sjálfskuldarábyrgðar ríkissjóðs skv. 1. mgr., að hluta eða öllu leyti, enda sé það fyrirkomulag tryggara fyrir ríkissjóð.
1)L. 138/2007, 3. gr. 2)L. 138/2007, 4. gr.
[4. gr.]1) [Fjármálaráðherra]
2) fyrir hönd ríkissjóðs er heimilt að endurfjármagna innlendar og erlendar skuldir fyrir gjalddaga þegar hagstæðari kjör bjóðast. Einnig er [fjármálaráðherra]
2) heimilt að taka fyrir hönd ríkissjóðs erlend skammtímalán til endurgreiðslu áður tekinna erlendra skammtímalána eða breyta sömu skammtímaskuldum í föst lán.

[Fjármálaráðherra]
2) er heimilt fyrir hönd ríkissjóðs að selja ríkisvíxla á innlendum markaði til endurgreiðslu áður útgefinna ríkisvíxla og til að bæta stöðu ríkissjóðs á aðalviðskiptareikningi hans í Seðlabankanum.

Enn fremur er [fjármálaráðherra]
2) fyrir hönd ríkissjóðs heimilt að breyta gjaldmiðlum og/eða vaxtakjörum á erlendum lánum með sérstökum samningum, enda felist ekki nýjar lántökur í slíkum breytingum.

Fjármálaráðherra skal árlega upplýsa Alþingi um notkun þessara heimilda.

Heimilt er að kveða nánar á um ákvæði þessarar greinar í reglugerð.
1)L. 138/2007, 3. gr. 2)L. 138/2007, 5. gr.
[5. gr.]1) [Fjármálaráðherra]
2) skal hafa eftirlit með lántökum aðila sem ríkisábyrgðar njóta á skuldbindingum sínum og vera ráðgefandi um skuldstýringu þeirra.

Skylt er þeim aðilum, er hyggjast taka lán erlendis og ríkisábyrgðar njóta á erlendum skuldbindingum, að kynna þau áform sín fyrir [fjármálaráðherra]
2) og leita eftir fyrir fram samþykki á þeim kjörum og skilmálum sem þeir hyggjast semja um.
1)L. 138/2007, 3. gr. 2)L. 138/2007, 6. gr.
[6. gr.]1) Heimilt er að semja við Seðlabanka Íslands um að hann annist framkvæmd …
2) lánamála, ríkisábyrgða- og endurlánamála, svo og önnur verkefni sem [fjármálaráðherra fer með samkvæmt lögum þessum]
2) eftir því sem hagkvæmt þykir.
1)L. 138/2007, 3. gr. 2)L. 138/2007, 7. gr.
[7. gr.]1) Nánari ákvæði um framkvæmd laga þessara …
2) má setja með reglugerð.
3)
1)L. 138/2007, 3. gr. 2)L. 138/2007, 8. gr. 3)Rg. 237/1998.
[8. gr.]1) Lög þessi öðlast þegar gildi. …
1)L. 138/2007, 3. gr.
[Ákvæði til bráðabirgða. Fjármálaráðherra tekur við almennum réttindum og skyldum Lánasýslu ríkisins og við samningum við þriðja aðila eftir því sem við getur átt samkvæmt ákvæðum laga þessara.]
1)
1)L. 138/2007, 9. gr.