Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. september 2018. Útgáfa 148c. Prenta í tveimur dálkum.
Lög vegna aðildar Íslands að Evrópusamningi um varnir gegn pyndingum og ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu
1990 nr. 15 27. mars
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 6. apríl 1990. Breytt með l. 162/2010 (tóku gildi 1. jan. 2011) og l. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við dómsmálaráðherra eða dómsmálaráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.




1. Tilgangur heimsóknar er að rannsaka hvernig meðferð maðurinn sætir, og
2. nefndin hefur tilkynnt þá fyrirætlun sína að heimsækja staði hér á landi.


1. Aðgang að þeim stöðum þar sem frelsissviptir menn eru vistaðir og rétt til ferðar innan slíkra staða án hindrunar,
2. að eiga viðtöl í einrúmi við frelsissvipta menn og aðra sem veitt geta upplýsingar um meðferð slíkra manna,
3. að fá upplýsingar sem hún þarfnast til að sinna hlutverki sínu.



1)L. 126/2011, 136. gr.


1. Friðhelgi að því er varðar handtöku og kyrrsetningu og hald á einkafarangri, svo og að því er varðar hvers kyns lögsókn vegna allra athafna þeirra í starfi, þar á meðal vegna ummæla í ræðu og riti.
2. Undanþágu frá öllum hömlum á ferðafrelsi við brottför og komu til landsins vegna starfa í nefndinni og undanþágu frá skráningu útlendinga þegar komið er í vitjun til landsins eða farið um landið af öðrum ástæðum vegna starfa sinna.
3. Sömu aðstöðu varðandi tollgæslu og gjaldeyriseftirlit og veitt er fulltrúum erlendra ríkisstjórna sem gegna hér á landi tímabundnum opinberum erindum.



