Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 20. janúar 2019. Útgáfa 149a. Prenta í tveimur dálkum.
Forsetabréf um heimild íslenskra ríkisborgara til að bera erlend heiðursmerki
1947 nr. 15 12. mars
Tók gildi 1. júlí 1947.
1. gr.
Íslenskir ríkisborgarar, sem hér eftir kunna að verða sæmdir erlendum heiðursmerkjum, skulu áður en eða jafnframt því að þeim berst heiðursmerkið í hendur, leita leyfis forseta Íslands til að veita því viðtöku og bera það.
2. gr.
Umsóknir um slík leyfi skulu stílaðar til forsetans og sendar forsetaritara, sem annast fyrirgreiðslu þeirra.