Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 10. janúar 2020. Útgáfa 150a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um rétt kvenna til embættisnáms, námsstyrks og embætta
1911 nr. 37 11. júlí
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 9. október 1911. Breytt með: L. 38/1954 (tóku gildi 1. júlí 1954).
1. gr.
Konur eiga sama rétt eins og karlar til að njóta kennslu og ljúka fullnaðarprófi í öllum menntastofnunum landsins.
2. gr.
Konur eiga sama rétt eins og karlar til hlutdeildar í styrktarfé því, sem veitt er af opinberum sjóðum námsmönnum við æðri og óæðri menntastofnanir landsins. … 1)
1)L. 38/1954, 37. gr.