141. löggjafarþing — 1. fundur,  11. sept. 2012.

afbrigði um sætisúthlutun.

[16:03]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Leita þarf afbrigða frá þingsköpum, þ.e. lokamálsgrein 3. gr. þingskapa, um hvernig hluta skal um sæti þingmanna, þannig að hv. þm. Helgi Hjörvar geti fengið sæti sem hentar fyrir þann búnað sem hann þarf að hafa í þingsalnum meðan þingfundur stendur. Þetta er sæti 32 fyrir hv. þm. Helga Hjörvar.

Enn fremur hefur orðið að samkomulagi milli forseta og formanna þingflokka um að leggja til að tekin verði frá sæti næst inngangi í salinn fyrir formennina en þeir dragi innbyrðis um þessi sæti. Skoðast þau afbrigði samþykkt ef enginn hreyfir andmælum.

Samkvæmt þessu hefur Álfheiður Ingadóttir sæti 44, Gunnar Bragi Sveinsson sæti 8, Illugi Gunnarsson sæti 23, Magnús Orri Schram sæti 22 og Margrét Tryggvadóttir sæti 45.