148. löggjafarþing — 1. fundur, 14. des. 2017.
drengskaparheit unnin.
Samkvæmt 2. gr. þingskapa ber þeim alþingismönnum sem nú taka sæti á Alþingi í fyrsta sinn að undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni. Af hinum 19 nýkjörnu alþingismönnum hafa níu áður tekið sæti á Alþingi, einn þingmaður er fjarverandi og undirritar heit sitt síðar, svo níu nýir þingmenn munu undirrita drengskaparheit á þessum fundi.
[Níu þingmenn undirrituðu drengskaparheit um að halda stjórnarskrána.]