151. löggjafarþing — 112. fundur,  11. júní 2021.

um fundarstjórn.

[14:18]
Horfa

Anna Kolbrún Árnadóttir (M):

Hæstv. forseti. Ég vil leyfa mér að taka undir orð hv. þm. Andrésar Inga Jónssonar vegna þessarar skýrslu sem nú er fram komin upp á átta blaðsíður og það er dálítið furðulegt að þetta hafi tekið svona langan tíma. Það er ekki hægt að halda því fram að þetta hafi verið rétt ákvörðun ef maður les í gegnum niðurstöðukafla þessarar skýrslu þannig að það er gott að hún er komin fram, en það er með ólíkindum að vinna við hana hafi tekið allan þennan tíma miðað við hversu stutt hún er.