143. löggjafarþing — 118. fundur,  16. maí 2014.

samning stefnumarkandi frumvarpa og þingsályktunartillagna.

67. mál
[17:48]
Horfa

Frsm. stjórnsk.- og eftirln. (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um tillögu til þingsályktunar um samningu stefnumarkandi frumvarpa og þingsályktunartillagna frá hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd.

Fyrsti flutningsmaður þingsályktunartillögunnar sjálfrar, sem er að finna í þskj. 67, er hv. þm. Pétur H. Blöndal, sem lagði málið fram ásamt 19 öðrum hv. þingmönnum sem listaðir eru í þingskjalinu.

Í þingsályktunartillögunni er lagt til að Alþingi álykti að skora á ríkisstjórnina að ráðherrar hennar feli viðkomandi þingnefndum, meiri hluta þeirra eða formanni ásamt hugsanlega öðrum þingmönnum að semja og ritstýra stefnumarkandi frumvörpum og þingsályktunartillögum sem þeir hyggjast flytja á Alþingi.

Í greinargerð með tillögunni kemur fram að kjarni hennar og megintilgangur er að færa lagasetninguna sjálfa í hendur þeirra aðila sem fara með lagasetningarvaldið samkvæmt stjórnarskránni, þ.e. alþingismanna, og þannig svara því ákalli m.a. að auka virðingarstöðu Alþingis.

Virðulegi forseti. Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Gunnar Helga Kristinsson, Hafstein Þór Hauksson, Pál Þórhallsson, Þorgerði K. Gunnarsdóttur og Hafdísi Ólafsdóttur.

Á fundum nefndarinnar var fjallað um áhrif þjóðkjörinna fulltrúa og hlutverk löggjafarvalds og framkvæmdarvalds á lagasetningu og gæði lagasetningar. Fram kom að mun meiri breytingar eru gerðar á þingmálum í meðförum Alþingis en í þjóðþingum annarra Norðurlanda og að þar virðist ríkari áhersla lögð á að lagasetning sé samvinnuverkefni og meira lagt í undirbúning mála áður en unnið er að gerð lagafrumvarps.

Virðulegi forseti. Í ljósi þessarar stefnumarkandi tillögu telur nefndin mikilvægt að skoðað verði hvernig auka megi hlut Alþingis, þingflokka, þingnefnda og þingmanna við undirbúning stefnumarkandi frumvarpa og þingsályktunartillagna sem leggja á fyrir Alþingi, m.a. í þeim tilgangi að auka gæði lagasetningar og skapa meiri sátt um málin. Nefndin telur einnig nauðsynlegt að auka eftirlit með innleiðingu og framkvæmd nýrra heildarlaga og telur nefndin jafnframt mikilvægt að skoðað verði hvernig þingnefndir geti sem best sinnt því eftirlitshlutverki og veitt framkvæmdarvaldinu þannig meira aðhald.

Nefndin leggur því til í þessu áliti að tillagan verði samþykkt með eftirfarandi breytingu:

Tillögugreinin orðist svo:

Alþingi ályktar að fela forsætisnefnd að skipa hóp sérfræðinga, þar á meðal fulltrúa þingflokka, sem kanni og komi með tillögur um hvernig auka megi hlut Alþingis, þingflokka, þingnefnda og þingmanna, við undirbúning stefnumarkandi frumvarpa og þingsályktunartillagna sem leggja á fyrir Alþingi, svo og hvernig Alþingi og þingnefndir geti fylgst með og haft eftirlit með innleiðingu og framkvæmd nýrra heildarlaga á viðkomandi málefnasviði.

Virðulegi forseti. Við afgreiðslu málsins var hv. þm. Brynhildur Pétursdóttir áheyrnarfulltrúi í nefndinni og samþykk afgreiðslu málsins.

Hv. þm. Helgi Hjörvar var fjarverandi við afgreiðsluna.

Ég vil ítreka það hér að mikil sátt var um afgreiðslu málsins og eftirtaldir hv. þingmenn rituðu undir þetta nefndarálit: Ögmundur Jónasson, formaður nefndarinnar, Brynjar Níelsson, Helgi Hrafn Gunnarsson, Karl Garðarsson, Pétur H. Blöndal, Sigrún Magnúsdóttir, Valgerður Bjarnadóttir og Sigurður Páll Jónsson.