154. löggjafarþing — 12. fundur,  10. okt. 2023.

samgönguáætlun fyrir árin 2024–2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024–2028.

315. mál
[19:52]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Ég þakka hv. þingmanni fyrir að koma þessum mjög svo góðu skilaboðum á framfæri. Það er ekki í kot vísað þegar Njáll Trausti Friðbertsson er annars vegar þegar kemur að samgöngumálum. Það hefði kannski verið gott fyrir hv. þingmann sem hér stendur að taka enn betri umræðu þegar við vorum á kjördæmarúnti hér fyrir viku síðan eða svo og ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir.