137. löggjafarþing — 14. fundur,  4. júní 2009.

afskriftir af höfuðstóli lána íslenskra heimila og rekstrarfyrirtækja.

49. mál
[15:29]
Horfa

Magnús Orri Schram (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég velti þessari hugmynd upp til umræðu vegna þess að ég held að við þurfum að gæta þess hvað við ræðum um í íslenskri pólitík. Ég held að útlendingarnir séu að fylgjast með. Ég velti þessu upp vegna þess að það getur vel verið að það sé málið og ég tel að við ættum að hafa það í huga.