138. löggjafarþing — 150. fundur,  3. sept. 2010.

gengistryggð lán.

[10:55]
Horfa

fjármálaráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) (Vg):

Svarið er nei. Mér var ekki kunnugt um og ég sá ekki þessi lögfræðiálit á þessum tíma, í maímánuði 2009, en að sjálfsögðu fylgdist ég, eins og aðrir, með þeirri umræðu sem þá var hafin um að lagaleg óvissa kynni að vera uppi um a.m.k. einhvern hluta lána sem voru á þeim grunni að vera tengd við erlenda gjaldmiðla. Þessi lögfræðiálit, eins og áður hefur verið upplýst, komu ekki inn í fjármálaráðuneytið á þessum tíma og ég sá þau ekki og mér var ekki kunnugt um þau og frétti ekki af tilvist þeirra fyrr enn alllöngu síðar.