136. löggjafarþing — 17. fundur, 30. okt. 2008.
skýrsla forsætisráðherra um efnahagsmál og aðkomu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Herra forseti. Ég hvet hv. þingmann til þess að fara inn á vef Ríkisútvarpsins, www.ruv.is, smella þar á tengil sem heitir fréttaupptökur og skoða fréttaupptökur frá því í fyrrakvöld. Þar sést umrædd frétt og allir geta kynnt sér viðtalið sem fréttamaður Ríkisútvarpsins átti við forsætisráðherra Noregs.